Landssamband veiðifélaga

Leirvogsá

Leirvogsá er dragá með lindarvatnsáhrifum og er vatnasvið hennar um það bil 85 ferkm. Hún rennur úr Leirvogsvatni og er um það bil 12 km. löng, en 8 km. frá sjó er ófiskgengur foss, sem nefnist Tröllafoss. á leið sinni til sjávar fær Leirvogsá töluverðan liðsauka með þverám sínum, þ.e. Stardalsá, Þverá og Grafará ásamt fjölda lækja. Leirvogsá varðar mörk Kjalarnesshrepps og Mosfellsbæjar auk Leirvogsvatns og Bugðu að hluta, en Bugða fellur í Leirvogsvatn. Veiðifélag var stofnað um Leirvogsá þann 6. apríl 1940, og nær félagið til eftirtalinna jarða og jarðarhluta: Skeggjastaða, Hrafnhóla, Minna Mosfells, Þverárkots, Norðurgrafar,Mosfells, Hrísbrúar, Varmadals, Leirvogstungu, Fitjakots, Vogs, Leira, Víðiness, Mosfellsbæjar og Blikastaða. Eftir stofnun veiðifélagsins hefur áin verið leigð út með ýmsum hætti.   Meðalveiði í Leirvogsá frá 1974 er 495 laxar, minnst 319, en metveiði – 1173 laxar – var árið 2008. Veiða má með tveim stöngum samtímis og tveir veiðimenn vera um stöng. Við veiðarnar má ekki nota annað agn en maðk og flugu. Veiðisvæðið nær frá ósi Leirvogs að Tröllafossi og er ánni skipt í 3 veiðisvæði á tímabilinu frá 25. júní til og með 10. ágúst. Svæði I nær frá ósi að Klapparhyl. Svæði II er ofan Klapparhyls að Þverá. Svæði III er ofan Þverár að Tröllafossi. Á tímabilinu frá 10. ágúst til og með 30. september er ánni skipt í tvö veiðisvæði. Svæði I nær frá ósi Leirvogs til og með Svilaklöpp, og svæði II er ofan Svilaklappar að Tröllafossi. Við úthlutun veiðileyfa er tilgreindur veiðitími yfir daginn og á hvaða svæði eða svæðum hefja skal veiði. Veiðimenn skulu skipta um veiðisvæði eftir hvíldartíma. Ef sami maður hefur báðar stangirnar sem leyft er að nota í ánni er honum í sjálfsvald sett hvar hann hefur veiðar. Veiðihús er í Norðurgrafarlandi og er það upphitað og lýst með rafmagni, ásamt vatnssalerni og eldunaraðstöðu. Veiðimenn þurfa ekki að mæta í veiðihúsið fyrir veiðitímann að morgni en aftur á móti ber þeim skylda til þess þegar veiði lýkur að kvöldi og skrá veiðina í veiðibók og leyfa veiðiverði að taka hreistursýni af veiddum löxum. Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að ganga vel um veiðihúsið, ána og umhverfi hennar og skilja þannig við að það sé þeim til sóma og boðlegt næstu veiðimönnum. Sérstök viðvörun: Að gefnu tilefni verður það ekki látið átöluluast að fleiri en tveir eða tvennt sé samtímis að veiðum á einnar stangar leyfi.

Heildarveiði ára

Heildarveiði ára

DagsetningLax
2025249
2024279
2023303
2022455
2021279
2020156
2019113
2018250
2016312
2015706
2014313
2013603
2012201
2011383
2010561
2009877
20081173
2007379
2006299
2005744
2004812
2003558
2002529
2001434
2000487

Veiði eftir vikum

DagsetningVikuveiðiHeildarveiði
25. júní11
2. júlí34
9. júlí812
16. júlí1931
23. júlí4172
30. júlí2496
6. ágúst46142
13. ágúst30172
20. ágúst14186
27. ágúst27213
3. sept.10223
10. sept.9232
17. sept.13245
24. sept.3248
1. okt.1249